Bárðar saga Snæfellsáss
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bárðar saga Snæfellsáss er Íslendingasaga sem er rituð í ýkjustíl. Hún segir frá Bárði Dumbssyni af ætt bergbúa. Bárður flýr Noreg og sest að sunnan undir Snæfellsjökli í óbyggðum og með tröllum á Íslandi og í Noregi. Í enda sögunnar gengur hann í jökulinn og gerist landvættur.
[breyta] Persónur
- Bárður Dumbsson
- Bárður Dumbsson er bergbúaættar. Hann er sonur Dumbs konungs og Mjallar af Kvenlandi. Hann var strax í æsku sterkur og stór. Hann var svo glæsilegur að margir höfðu ekki fegri mann séð. Hann var afar líkur móður sinni, mjallhvítur. 13 ára giftist hann Flaumgerði dóttur Dofra. Þau áttu 3 dætur saman. Síðan deyr Flaumgerður og líður Bárði mjög illa yfir því. Svo giftist hann Herþrúði og eignast þau 6 dætur saman.
- Dumbur konugur
- Mjöll af Kvenland
- Flaumgerður
- Flaumgerður giftist Bárði þegar hann var 13 ára, og eingast með henni 3 börn. Síðan deyr hún.
- Herþrúður
- Herþrúður giftist Bárði eftir að Flaumgerður dó, og eignuðust þau 6 dætur saman.
Íslendingasögurnar |
---|
Bandamanna saga · Bárðar saga Snæfellsáss · Bjarnar saga Hítdælakappa · Brennu-Njáls saga · Droplaugarsona saga · Egils saga · Eiríks saga rauða · Eyrbyggja saga · Finnboga saga ramma · Fljótsdæla saga · Flóamanna saga · Fóstbræðra saga · Færeyinga saga · Grettis saga · Gísla saga Súrssonar · Grænlendinga saga · Grænlendinga þáttur · Gull-Þóris saga · Gunnars saga Keldugnúpsfífls · Gunnlaugs saga ormstungu · Hallfreðar saga vandræðaskálds · Harðar saga og Hólmverja · Hávarðar saga Ísfirðings · Heiðarvíga saga · Hrafnkels saga Freysgoða · Hrana saga hrings · Hænsna-Þóris saga · Kjalnesinga saga · Kormáks saga · Króka-Refs saga · Laxdæla saga · Ljósvetninga saga · Reykdæla saga og Víga-Skútu · Svarfdæla saga · Valla-Ljóts saga · Vatnsdæla saga · Víga-Glúms saga · Víglundar saga · Vopnfirðinga saga · Þorsteins saga hvíta · Þorsteins saga Síðu-Hallssonar · Þórðar saga hreðu |