Alexandra Bretadrottning
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alexandra Bretadrottning (fædd Alexandra Carolina Marie Charlotte Louise Julia; f. 1. desember 1844 – 20. nóvember 1925) var var dóttir Kristjáns 9. Danakonungs og prinsessa í Danmörku. Hún giftist síðar Alberti Játvarði krónprins Bretlands, sem síðar varð Játvarði 7 og með því varð hún Alexandra Bretadrottning.
[breyta] Líf og fjölskylda
Alexandra Danaprinsessa eða Alix eins og hún var ávallt kölluð í fjölskyldunni, fæddist í Kaupmannahöfn árið 1844. Foreldrar hennar voru Kristján prins, seinna Kristján 9., og Louise af Hessen-Kassel.
Þann 10. mars 1863 giftist Alexandra Alberti Játvarði Bretakrónprinsi, syni Viktoríu Bretadrottningar og Alberts prins. Þau eignuðust sex börn:
- Albert Viktor prins, hertoginn af Clarence (f. 8. janúar 1864 – 14. janúar 1892)
- Georg prins, seinna Georg 5. Bretakonungur (f. 3. júní 1865 – 20. janúar 1936)
- Lovísa prinsessa, hin konunglega prinsessa, hertogaynjan af Fife (f. 20. febrúar 1867 – 4. janúar 1931)
- Viktoría Alexandra prinsessa (f. 6. júlí 1868 – 3. desember 1935)
- Maud prinsessa, seinna Noregsdrottning (f. 26. nóvember 1869 – 20. nóvember 1938)
- Alexander Jóhann (f. 6. apríl 1871 – 7. apríl 1871).
Alexandra dó árið 1925 í Sandringham eftir hjartaáfall. Hún er grafin við hlið eiginmanns síns í kapellu heilags Georgs í Windsorkastala.