Walt Disney
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Walter Elias Disney (5. desember 1901) – 15. desember 1966) er aðallega þekktur fyrir að hanna, leikstýra og framleiða teiknimyndir. Hann er ásamt bróður sínum Roy O. Disney stofnandi Walt Disney fyrirtækisins.
Walt Disney og fyrirtæki hans sköpuðu margar eftirminnilegar teiknimyndapersónur; sú þekktasta er Mikki Mús. Mikki Mús var fyrsta persóna Disney kvikmyndafyrirtækisins. Meðal annarra eru Mína Mús, Andrés Önd, Guffi og Plútó. Walter gerði stuttmyndir um þessar persónur til ársins 1937 þegar fyrirtækið gerði sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd Snow White and the Seven Dwarfs( íslenska: Mjallhvít og dvergarnir sjö). Walt Disney hefur gert helling af vinsælum kvikmyndum t.d. Mary Poppins.