Tasiilaq
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tasiilaq er grænlenska og þýðir „þorpið sem er við fjörðinn sem er eins og vatn“. Íbúafjöldi var árið 2005 um 1852. Tasiilaq er aðal þéttbýliskjarni í sveitarfélaginu Ammassalik og annað af tveimur þorpum á 3000 km langri austurströnd Grænlands. Þorpið var áður nefnt Ammassalik en það nafn er nú einungis notað um sveitarfélagið.
Þorpið er mjög einangrað, yfir veturinn er einungis hægt að komast þangað með þyrlu, hundasleða eða snjósleða. Frá júlí fram í nóvember kemur farskip um það bil fjórum sinnum með nauðsynjar.
Í Tasiilaq ber enn merki upphaflegrar menningar og lífskjara. Íbúar lifa einkum af veiðum og þjónustu. Það er ekki meir en hundrað ár frá því fyrstu Evrópumennirnir komu á svæðið, byggðu hús og stofnuðu þorpið.
Þorpið er á 65.36N; 37.33V, og er um 7.277 km fyrir norðan miðbaug.
Flugfélag Íslands flýgur frá Reykjavík til Kulusuk yfir sumartímann. Frá Kulusuk er um það bil 15 mínútna þyrluflug til Tasiilaq.