Kulusuk
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kulusuk (á dönsku: Kap Dan) er byggðakjarni á samnefndri eyju í Ammassalik sveitarfélaginu á Austur-Grænlandi. Íbúafjöldi er um 350. Á Kulusuk-eyju er einnig Kulusuk flugvöllurinn sem er eini alþjóðlegi flugvöllurinn á Austur-Grænlandi. Yfir sumartímann flýgur Flugfélag Íslands frá Reykjavík. Reglulegt áætlunarflug Air Greenlands er allt árið um kring frá Nuuk og Kangerlussuaq. Frá flugvellinum er um 10 mínútna flug með þyrlu til Tasiilaq. Frá 1959 til 1991 var rekin bandarísk ratsjárstöð á Kulusuk.
Grænlenska nafnið Kulusuk þýðir 'brjóst teistunnar'.