Stuttnefja
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stuttnefja | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Stuttnefjur á Svalbarða.
|
||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Ástand stofns: Í lítilli hættu
|
||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
|
||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Uria lomvia (Linnaeus, 1758) |
Stuttnefja (fræðiheiti: Uria lomvia) er strandfugl af svartfuglaætt og nokkuð lík langvíu. Hún er svört á höfði og baki en hvít að neðanverðu. Á veturnar fær hún hvíta vanga. Goggurinn er svartur, oddhvass og með hvítri rönd á jaðri efra skolts. Fætur eru svartir og augun svört. Merkilegt er að Stuttnefjan gerir sér ekki hreiður heldur verpir á bera klettasyllu en hana má helst finna í stórum hópum í Látrabjargi, Hælavík og Hornabjargi. Lítið er vitað um ferðir hennar á veturnar en flestar langvíur eru hér frá byrjun apríl og fram til byrjun ágúst.