Sjimkent
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sjimkent (Шымкент) | |
---|---|
Grunnupplýsingar | |
Land: | Kasakstan |
Kjördæmi: | Suður Kasakstan |
Kasakskt nafn: | Шымкент |
Rússneskt nafn: | Чимкент |
Sveitarstjóri: | Anarbék Orman (Анарбек Орман) |
Íbúafjöldi: | 413,826 |
Flatarmál: | 117,3 km² |
Póstnúmer: | 486050 |
Opinber vefsíða: | www.uko.kz |
Sjimkent (kasakska Шымкент) er önnur stærsta borg Kasakstans og er staðsett í sunnanverðu landinu. Um hana fara margir pílagrímar á leið til Túrkistan, sem múslimar telja helgan stað. Íbúar Sjimkent eru flestir Kasakar og er kasakska útbreiddasta tungumálið, en eitthvað er um að töluð sé rússneska. Glæpatíðni er há og er sagt að umsvif kasöksku mafíunnar og þeirrar rússnesku séu mikil.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga Sjimkent
Sjimkent var stofnuð á 12. öld og byggðist upphaflega í kringum þjónustu við kaupmenn sem þræddu Silkileiðina, og Úsbeka sem bjuggu á svæðinu. Borgin varð fyrrum oft fyrir árásum hirðingja, en það er nú löngu liðin tíð. Árið 1810 hertók Búkaríska furstadæmið borgina, og árið 1864 Rússar.
Nafnið Sjimkent á rætur sínar að rekja til sjogdísku og mundi útleggjast á íslensku sem Klömbruborg (klambra er skorið torf). Umritun á nafni borgarinnar er umdeild. Kasakar nota kyrillískt letur líkt og rússar. Kasakar skrifa „Шымкент“, og er það hinn almenni ritháttur, en rússneskar réttritunarreglur banna að skrífað sé „ы“ á eftir „Ш“ eða „Ч“. Þess vegna skrifa Rússar „Чимкент“ (framburður: Tjimkent). Þar sem Kasakar eru í miklum meirihluta í borginni og vilja ekki láta Rússa hafa eitthvað með rithátt tungu sinnar að gera, þá er fyrrnefndi rithátturinn ríkjandi.
[breyta] Samgöngutæki
Kazybek Bi er stræti í Sjimkent þar sem verslanir liggja. Það er líka veggur sem fer beint til Túrkistan. Margir túristar fara til Sjimkent, og þá taka leigubíll eða rútan til Túrkistan. Flugvöllurinn í Sjimkent er lítill og liggur í norður-Sjimkent, ca. 12km frá bænum. Air Astana flygur hingað frá Almaty, Aktá, og Astönu víklega. Það eru líka flugher og flugvélar frá Sameinuðu þjóðirnar sem fljúga frá Sjimkent. Járnbrautarstöðin er mjög stór í Sjimkent. Það tekur 20 klukkutíma til að fara á lestinni frá Almaty til Sjimkent, en stöðin er nálægt miðbænum.
[breyta] Garðar
[breyta] Kengbaba Garður
Í miðbænum er vinsæll garður sem nefnist Kengbaba-garðurinn. Þar er alltaf mikið um fólk sem er að viðra sig og víða börn að leik. Í garðinum eru svæði sem eru nefnd eftir löndum, eins og t.d. litla-Egyptaland, litla-Túrkistan o.s.frv. Í garðinum er lítil tjörn og kaffihús og stór leikvöllur þar sem börn stunda knattspyrnu.
[breyta] Fantasy World
Fantasy World er líka frægur garðurinn sem liggur rétt hjá Hotel Shimkent. Þetta svæði er mjög frægur fyrir ungar fólk og í kvöldinu það er mikið fólk sem fara þarna. Það er skemmtastaður í Fantasy World líka. Fantasy World er frægt í öllu landinu í Kasakstan, það er í Almaty og Astönu líka.
[breyta] Þjóðernishópar
[breyta] Markverðir staðir
- Sögusafnið
- Bazaar (Markaður)
- Museum of Repression
- Afganistan striður minnisvarði
- Arboretum (ДендроПарк á rússnesku)
- Nárús (Mars) Hátið
- Al-Farabivöllur
- Mega: Verslanamiðstöð
- Kengbaba (kz. Кең баба) Garður