Repúblikanaflokkurinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Repúblikanaflokkurinn (e. Republican Party, gengur oft undir skammstöfuninni GOP fyrir Grand old party) er stjórnmálaflokkur í Bandaríkjunum og annar tveggja stórra flokka þar í landi, hinn er Demókrataflokkurinn. Núverandi forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, er meðlimur flokksins. Hann telst núorðið vera íhaldssamari flokkurinn í Bandaríkjunum.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Flokkurinn var stofnaður 28. febrúar 1854 í Ripon, Wisconsin til þess að berjast gegn útbreiðlu þrælahalds og stuðla að nútímavæðingu Bandaríkjanna. Hann var ótengdur nafna sínum Demókratíska repúblikanaflokkinum sem Demókrataflokkurinn rekur rætur sínar til. Flestir stuðningsmanna hins nýja flokks voru fyrrum viggar en einnig gengu margir demókratar í norðurríkjunum til liðs við hann vegna ágreinings við demókrata í suðurríkjunum um þrælahaldið. Sá klofningur auðveldaði Abraham Lincoln að verða fyrsti forseti flokksins en þeir hafa verið 18 hingað til.
Frá stofnun og fram yfir miðja 20. öld var flokkurinn sterkastur í norðausturríkjunum, miðvesturríkjunum og á vesturströndinni á meðan demókratar voru ósigrandi í suðrinu. Á síðustu áratugum hefur þetta algjörlega snúist við.
[breyta] Forsetar repúblikanaflokksins
- Abraham Lincoln, 1861–1865
- Ulysses Grant, 1869–1877
- Rutherford Hayes, 1877–1881
- James Garfield, 1881
- Chester Arthur, 1881–1885
- Benjamin Harrison, 1889–1893
- William McKinley, 1897–1901
- Theodore Roosevelt, 1901–1909
- William Taft, 1909–1913
- Warren G. Harding, 1921–1923
- Calvin Coolidge, 1923–1929
- Herbert Hoover, 1929–1933
- Dwight Eisenhower, 1953–1961
- Richard Nixon, 1969–1974
- Gerald Ford, 1974–1977
- Ronald Reagan, 1981–1989
- George H. W. Bush, 1989–1993
- George W. Bush, síðan 2001
[breyta] Tenglar
[breyta] Heimild
- Greinin „Republikanische_Partei“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt 3. nóvember 2006.