Phil Selway
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Philip „Phil" James Selway (fæddur 23. maí, 1967 í Abingdon, Oxfordshire, Englandi) er trommari hljómsveitarinnar Radiohead. Nákvæm tímasetning hans og fjölbreytni í trommuleik hefur gefið hljómsveitinni sitt einstaka hljóð. Hann er ári eldri en hinir meðlimir hljómsveitarinnar (að frátöldum Jonny Greenwood sem er fjórum árum yngri en Phil). Hann gekk í sveitina eftir að frumstæð trommuvél þeirra bilaði og þeir höfðu ekki efni á nýrri. Áður en Radiohead nutu velgengni lærði Phil ensku og sögu við Liverpool Polytechnic. Hann hafði farið á hljómleikaferðalög með ýmsum tónlistarmönnum og unnið sem enskukennari að auki. Phil á eiginkonu, Kate, og þrjá syni: Leo, Jamie og Patrick (sem Kid A, Amnesiac og Hail to the Thief voru tileinkaðir í sömu röð)
[breyta] Verkefni utan hljómsveitarinnar
Ólíkt félögum hans í Radiohead, Thom Yorke og Jonny Greenwood, hefur Phil ekki unnið mikið við tónlist utan hljómsveitarinnar. Samt sem áður hefur hann á undanförnum árum orðið virkari í samvinnu við aðra listamenn. Hann hefur verið í samstarfi við The Samaritans sem styrktarmaður og félagi í mörg ár. Phil hefur einnig komið fram með Dive Dive í mars 2005 og leikið í kvikmyndinni Harry Potter and the Goblet of Fire sem meðlimur í hljómsveitinni The Wyrd Sisters ásamt félaga sínum í Radiohead Jonny Greenwood og Jarvis Cocker söngvara Pulp