Manhattan
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Manhattan er minnsti en þéttbýlasti hluti New York-borgar í Bandaríkjunum. Manhattan-eyja er 51,8 km² en til hverfisins teljast einnig nálægar minni eyjar og vatnsyfirborð, samtals er Manhattanhverfi 87,5 km² stórt.
Manhattan er staðsett á samnefndri eyju, ásamt nokkrum minni eyjum í kring og litlu svæði á meginlandinu. Manhattan-eyja er aðskilin frá New Jersey af Hudson River, sem er stór og mikil á vestan eyjarinnar og frá Long Island af East River, sem er sund á milli Long Island og Manhattan.
Manhattan var upphaflega í eigu Indíána eins og reyndar allt land í Bandaríkjunum. Hollendingar keyptu Manhattan af þeim fyrir lítið fé og reistu þar vísi að borg, sem í upphafi hét Neuwe Amsterdam eða Nýja Amsterdam. Nafninu var svo breytt í New York eftir að Bretar náðu öllum völdum á þessum slóðum.
Um 1,5 milljón manns býr á Manhattan. Manhattan skiptist í allmörg hverfi og eru Harlem, Chinatown, Little Italy, Tribeca og Greenwich Village meðal þeirra.
Á Manhattan eru meðal annars Empire State-byggingin, viðskiptamiðstöðin Wall Street, Broadway og háskólarnir New York-háskóli og Columbia-háskóli. Neðst á Manhattan stóðu tvíburaturnarnir, World Trade Center, sem hrundu til grunna í hryðjuverkaárás þann 11. september árið 2001. Þar sem þeir stóðu er nú kallað Ground Zero.
Á Manhattan eru nokkrir almenningsgarðar og er Central Park þeirra þekktastur og stærstur. Innan Central Park er heill dýragarður, skemmti- og veitingastaðir, vötn og tjarnir, göngustígar og hjólabrautir og fleira. Garðurinn er margir ferkílómetrar að stærð.
New York-borg |
---|
Brooklyn | Bronx | Manhattan | Queens | Staten Island |