Malt
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Malt er bygg sem hefur verið látið spíra í raka („melt bygg“). Við spírun myndast meltingarhvatinn amýlasi sem brýtur sterkjuna í bygginu niður í sykrur við ákveðið hitastig þannig að sætuefnið maltósi verður til. Stundum er byggið ristað til að fá fram sérstakan lit eða bragð af maltinu. Malt er grunnþáttur við bruggun öls eins og t.d. bjórs og maltöls.