Klakksvík
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Klakksvík (færeyska: Klaksvík) er næst stærsti bær Færeyja, staðsettur á Borðoy með um það bil 4700 íbúa. Mikil fiskvinnsla er stunduð í Klakksvík. Einu sinni voru 4 bóndabæir þar sem Klakksvík stendur. Byggðin jókst smám saman varð að fjórum þorpum, síðan byrjuðu þorpin að vaxa saman og mynduðu þá bæinn Klakksvík. Póstnúmer bæjarins er FO 700.