Júpíter (guð)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hinn rómverski guð Júpíter fór í rómverskri goðafræði með samskonar hlutverk og Seifur í þeirri grísku og að einhverju leyti Óðinn í norrænni goðafræði. Nafn hans er komið af sömu indóevrópsku rót og nafn Seifs í grískri goðafræði og nafn Týs í norrænni goðafræði.
Júpíter var himnaguð, guð laga og reglufestu.
[breyta] Áhrif
Nafn Júpíters hefur fest sig í sessi með rómönskum málum þar sem fimmtudagur heitir í höfuðið á guðinum.
Fimmta reikistjarna Sólkerfisins heitir í höfuðið á guðinum.
[breyta] Heimild
- Greinin „Jupiter (mythology)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 10. ágúst 2006.