Seifur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Þessi grein fjallar um gríska guðinn. Um mannsnafnið, sjá Seifur (mannsnafn)
Seifur (á grísku: Ζεύς, (í eignarfalli) Δíος) var höfuðguð grískrar goðafræði. Hann var himnaguð og þrumuguð, guð laga og reglu. Hliðstæða Seifs í rómverskri goðafræði var Júpíter, sem var raunar upphaflega sami indóevrópski guðinn.
Seifur var sonur Krónosar og Rheu. Kona hans var Hera, systir hans. Meðal barna hans voru guðirnir Ares, Hefæstos, Aþena, Hermes, Apollon og Artemis, og Afródíta (skv. sumum sögum). Hann átti einnig börn með mennskum konum, þ.á m. Herakles, Helenu fögru og Pollux