Hundraðmannahellir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hundraðmannahellir er hellir í basalthrauni sunnan við Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Sagt er að þar hafi hundrað manns getað falið sig fyrir sjóræningjum frá Alsír í Tyrkjaráninu 1627 og af því hafi hellirinn fengið nafn sitt.
Hellirinn er nánast lokaður vegna sigs og jarðvegs sem safnast hefur í hellismunnann og er því ekki aðgengilegur.