Húsgagn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Húsgagn er viðtækt hugtak yfir þá ýmsu hreyfanlegu hluti sem má nota til að styðja við mannslíkaman (stólar og rúm), sjá fyrir geymslu eða halda öðrum hlutum uppi á láréttu yfirborði yfir jörðina. Geymsluhúsgögn (sem oft hafa hurðir, skúffur eða hillur) eru notuð til að geyma minni hluti svo sem föt, verkfæri, bækur og heimilisvörur. Fyrstu húsgögnin voru algerlega nauðsynjar en síðan þá hafa mennirnir verið að þróa húsgögn sér til augnayndis og aukinna þæginda.