Verkfæri
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Verkfæri (eða amboð) er áhald eða tæki til að vinna með og auðvelda þannig verkið sem fyrir liggur. Verkfæri eru oft æði sérhæfð, en einföldustu verkfæri eru oft aldagömul, s.s. hamarinn og öxin. Slík verkfæri er hægt að nota til ólíkustu verka. En önnur verkfæri eru öllu sérhæfðari eins og t.d. skrúfjárnið og yddarinn. Verkfæri spara oft tíma og minnka oft líkamlega áreynslu, eins og t.d. járnkarlinn og kúbeinið.
Verkfæri sem notuð eru í eldhúsi eru oft nefnd eldhús- eða búsáhöld.