Devontímabilið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Devontímabilið er fjórða af sex tímabilum á fornlífsöld, það byrjar fyrir 416 ± 2,8 milljónum ára við lok sílúrtímabilsins og endar fyrir 359,2 ± 2,5 milljónum ára við byrjun kolatímabilsins.
[breyta] Líf
Fyrstu jurtirnar sem báru fræ mynduðust á landi og mynduðu stóra skóga, frumstæðir hákarlar urðu algengari en á sílúrtímabilinu og síð-ordóvisíumtímabilinu og fyrstu beinfiskarnir og holduggarnir birtust. Sumir holduggarnir þróuðu með sér fætur og skriðu á land sem ferfætlingar fyrir um 365 Má. Síðdevon fjöldaútdauðinn hafði mikil áhrif á sjávarlíf nálægt lokum tímabilsins.
[breyta] Nafnsifjar
Nafn tímabilsins er dregið af Devonsýslu á Englandi þar sem jarðlög frá tímabilin voru fyrst könnuð.
Fornlífsöld | |||||
---|---|---|---|---|---|
Kambríumtímabilið | Ordóvisíumtímabilið | Sílúrtímabilið | Devontímabilið | Kolatímabilið | Permtímabilið |
Tímabil sýnilegs lífs | ||
---|---|---|
Fornlífsöld | Miðlífsöld | Nýlífsöld |