Kambríumtímabilið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kambríutímabilið er upphaf fornlífsaldar sem aftur er upphaf tímabils sýnilegs lífs. Það hófst fyrir 542 ± 1.0 milljón árum síðan og lauk fyrir 488.3 ± 1.7 milljón árum þegar Ordóvisíumtímabilið gekk í garð.
Kambríumtímabilið er fyrsta tímabilið í jarðsögunni þar sem finnast margir og stórir steingervingar fjölfrumunga, þessi skyndilega aukning á stærri og flóknari lífverum nefnist kambríum sprengingin. Hin útdauðu liðdýr þríbrotar og frumstæðar jurtir eru meðal lífvera sem birtust á þessu tímabili.
[breyta] Nafnsifjar
Kambría er umritun á cambria sem er umritun á cymru sem er velska heitið yfir Wales, en þar voru jarðlög frá tímabilinu fyrst könnuð.
Fornlífsöld | |||||
---|---|---|---|---|---|
Kambríumtímabilið | Ordóvisíumtímabilið | Sílúrtímabilið | Devontímabilið | Kolatímabilið | Permtímabilið |
Tímabil sýnilegs lífs | ||
---|---|---|
Fornlífsöld | Miðlífsöld | Nýlífsöld |