Chichewa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Chichewa Chicheŵa |
||
---|---|---|
Málsvæði: | Malaví, Mósambík, Sambía og Simbabve | |
Heimshluti: | Mið-Afríka | |
Fjöldi málhafa: | 9,3 milljónir | |
Sæti: | ekki meðal 100 efstu | |
Ætt: | ||
Stafróf: | {{{stafróf}}} | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál: | Malaví | |
Stýrt af: | Ekki vitað | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1: | ny | |
ISO 639-2: | nya | |
SIL: | nya | |
Tungumál – Listi yfir tungumál | ||
Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Chichewa (eða Cinyanja) er tungumál í Bantu-tungumálafjölskyldunni og jafnframt opinber tunga Malaví. Málið er einnig talað í Sambíu, Mósambík og Simbabve. Forskeytið chi- (einnig skrifað ci-) merkir tungumál og er því oft talað um Chewa eða Nyanja. Chingoni (Ngoni) og Chikunda (Kunda) eru mállýskur þess.
[breyta] Dreifing
Chichewa er opinbert tungumál í Malaví ásamt því að það er talað í nokkrum ættbálkum í austurhluta Sambíu. Í Mósambík er málið talað í Tété og Niassa-héröðunum og í Simbabve er tungan þriðja útbreiddust í landinu, á eftir Shona og Ndebele.
Bæði Biblían og Kóraninn hafa verið þýdd á Chichewa.
[breyta] Saga
Málið kemur frá veldi Marava, sem var uppi á 15. til 18. öld og náði yfir allt Malaví og hluta Mósambík og Sambíu. Eftir að veldið splundraðist hélt tungumálið velli og kristnir trúboðar tóku m.a. tunguna þegar þeir komu inn á svæðið. Fyrsta málfræðibókin á Chewa var skrifuð uppúr 1880 af Alexander nokkrum.