Borgaraflokkurinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Borgaraflokkurinn var líka heiti á kosningabandalagi Sparnaðarbandalagsins og Sjálfstæðisflokksins eldra fyrir kosningarnar 1923.
Borgaraflokkurinn var íslenskur stjórnmálaflokkur stofnaður af Alberti Guðmundsyni en hann klofnaði frá Sjálfstæðisflokknum árið 1987 í kjölfar Hafskipsmálsins. Fyrirtæki Alberts blandaðist í málið og honum gert að segja af sér ráðherraembætti 24. mars af forystu Sjálfstæðisflokksins.
Borgaraflokkurinn náði sjö þingmönnum í kosningunum 1987, þar á meðal Alberti Guðmundssyni og Inga Birni Albertssyni. 1989 gerðist Albert sendiherra í París. Haustið 1989 ákvað flokkurinn, undir formennsku Júlíusar Sólnes, að taka þátt í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar ásamt Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi. Við það sögðu tveir þingmenn flokksins sig úr honum og mynduðu eigin flokk sem síðar sameinaðist Sjálfstæðisflokknum. Flokkurinn bauð fram í kosningunum 1991 en náði ekki inn manni og var lagður niður árið 1994.