Björn Sv. Björnsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Björn Sveinsson Björnsson (15. október 1909 – 14. apríl 1998) var sonur Sveins Björnssonar, forseta Íslands, og Georgíu Björnsson.
Í seinni heimsstyrjöldinni gekk Björn til liðs við SS-sveitir nasista og fór á austur-vígstöðvarnar sem fréttaritari. Hann var síðar sendur til Danmerkur þar sem hann varð yfirmaður danska útvarpsins en gaf líka út tímarit sem hét Daggry. Þegar Þjóðverjar gáfust upp árið 1945 var Björn tekinn til fanga og var í varðhaldi í Danmörku til 1946.
Eftir að Björn var látinn laus úr haldi flutti hann til Íslands, en flutti svo nokkrum árum seinna til Argentínu.