Páll postuli
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Páll postuli (hebreska: שאול התרסי Šaʾul HaTarsi, sem merkir „Sál frá Tarsus“, forngríska: Σαουλ Saoul og Σαῦλος Saulos og Παῦλος Paulos) „postuli heiðingjanna“, var, ásamt Pétri postula og Jakobi réttláta, ötulastur fyrstu kristniboðanna. Páll snerist til Kristni á veginum til Damaskus þegar hann varð fyrir opinberun og Jesús Kristur upprisinn talaði við hann. Páli eru eignuð fjórtán af bréfum nýja testamentisins sem gengu meðal manna í fyrstu kristnu söfnuðunum. Bréfin eru talin elstu rit nýja testamentisins. Áhrif hans á kristna trú voru gríðarleg, einkum í Rómaveldi þar sem hann var að lokum handtekinn og hálshöggvinn að talið er árið 64 eða 67.
[breyta] Tenglar