Nikkel
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kóbolt | Nikkel | Kopar | |||||||||||||||||||||||
Palladín | |||||||||||||||||||||||||
|
Nikkel er frumefni með efnatáknið Ni og er númer 28 í lotukerfinu.
[breyta] Almennir eiginleikar
Nikkel er silfurhvítur málmur sem að tekur á sig mikinn gljáa. Það tilheyrir járnhópnum og er hart, þjált og sveigjanlegt. Það finnst bundið við brennistein í milleríti, við arsenik í steintegundinni nikkólít, og við arsenik og brennistein í gersdorffíti.
Sökum stöðuleika þess við snertingu við loft og viðmóti þess við oxun, er það mikið notað í mynt, til að málmhúða járn, látún, og þess háttar, í efnafræðitæki, og í málmblöndur, sem nýsilfur. Það er segulmagnað, finnst oft með kóbolti, og finnast bæði með járni úr loftsteinum. Það er einkum verðmætt sökum málmblandna sem að það myndar.
Nikkel er eitt af fimm járnsegulmögnuðu frumefnunum.
Algengasta oxunarstig nikkel er +2, en 0, +1 og +3 hafa einnig fundist.
[breyta] Notkun
Um það bil 65% af nikkel sem að notað er í hinum vestræna heimi, er notað í framleiðslu á ástenísku ryðfríu stáli. Önnur 12% eru notuð í hitaþolnar málmblöndur. Afgangurinn, eða um 23%, skiptist á milli stálmálmblandna, endurhlaðanlegra rafhlaðna, efnahvata og annarra efna, myntar, smiðjuvara og húðunar.
Almenn not nikkels eru til dæmis:
- Ryðfrítt stál og aðrar tæringarþolnar málmblöndur.
- Nikkel stál er notað í brynvarnir og þjófheldnar öryggisvörslur.
- Málmblandan Alnico er notuð í segulstál.
- Mu-málmur hefur sérstaklega háann segulstuðul og er notað til að hlífa við segulsviði.
- Monel® málmur er nikkelmálmblanda sem að hefur gríðarlegt þol við tæringu, er notaður í skrúfur skipa, eldhúsvörur og pípulagnir í efnaiðnaði.
- Mótunarminnismálmar er notaðir í þjarkafræði.
- Endurhlaðanlegar rafhlöður, eins og nikkelmálmhýdríð og nikkel-kadmín rafhlöður.
- Mynt. Á Íslandi er nikkel notað í alla mynt. 50- og 100-krónu myntin hefur að geyma um 5,5% nikkel. Smærri myntin (1-, 5- og 10-krónur) var fyrst gerð úr blöndu af um 25% nikkel og 75% kopar en eftir 1996 varð henni breytt í nikkelhúðað stál.
- Í rafhúðun.
- Í deiglur fyrir rannsóknastofur í efnafræði.
- Fínlega skipt nikkel er notað sem efnahvati fyrir vetnisbundna jurtaolíu.