Slagelse
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Slagelse er bær á suðvestur-Sjálandi í Danmörku og árið 2007 var íbúafjöldi bæjarins 31.914. Bærinn er sjöundi stærsti bær Sjálands og kemur nafn bæjarins frá gamla danska orðinu slagh sem þýðir „niðursokkin í landslagið“" og else sem er annað orð yfir „leysa“. Um það bil 7 km vestur frá Slagelse liggur Víkingaborgin Trelleborg.