Sýra
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sýrur eru efni sem losa frá sér H + jónir (í vatnslausn) og eru með sýrustig lægra en sjö. Lýsa má því efnahvarfi með efnajöfnunni þar sem Q er misstór efnahópur. Til eru bæði rammar sýrur og daufar sýrur, en í römmum sýrum losa allar sýrusameindirnar H + jónina út í lausnina óháð styrk þeirra fyrir, en í daufum sýrum losnar aðeins hluti H + jónanna, misstór eftir styrk (sýrustigi). Mikilvæg tegund daufra sýra eru lífrænar sýrur, en það eru lífræn efni með carboxyl hóp (sýruhóp)) við endann, þ.e. Q'COOH en þá verður efnahvarfið . Allar þær sýrur sem líkaminn notar í sínum daglegu störfum (fyrir utan saltsýru í maganum) eru lífrænar sýrur.