Sólon
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Þessi grein fjallar um forngríska löggjafann. Um nafnið, sjá Sólon (nafn).
Sólon (á forngrísku: Σόλων, um 638 f.Kr. – 558 f.Kr.) var aþenskur stjórnmálamaður, löggjafi og lýrískt skáld og þekktur sem einn helsti stofnfaðir aþenska borgríkisins og honum er gjarnan eignaður heiðurinn á því að hafa lagt hornsteininn að aþenska lýðræðinu.[1][2] Pásanías taldi Sólon einn af vitringunum sjö.[3]
[breyta] Neðanmálsgreinar
- ↑ Stanton G.R. Athenian Politics c. 800-500 BC: A Sourcebook (London: Routledge, 1990): 76.
- ↑ Aristóteles, Stjórnspekin 1273b35-1274a21
- ↑ Pásanías 10.24.1.
|
---|
Æskínes · Agyrrhíos · Alkibíades · Andókídes · Arkínos · Aristídes · Aristogeiton · Aristófon · Átókles · Kallistratos · Kremonídes · Kímon · Kleisþenes · Kleófon · Kleon · Krítías · Demades · Demetríos frá Faleron · Demokkares · Demókles · Demosþenes · Efíaltes · Evbúlos · Hýperbólos · Hýpereides · Lakkes · Lýkúrgos · Lýsikles · Miltíades · Mörókles · Níkías · Peisistratos · Períkles · Filinos · Fókíon · Sólon · Þemistókles · Þeramenes · Þrasýbúlos · Þúkýdídes · Xanþippos |