Sínaískagi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sínaískagi (arabíska: شبه جزيرة سيناء, Shibh Jazirat Sina) er þríhyrndur skagi sem skagar út í Rauðahaf og tilheyrir Egyptalandi. Hann afmarkast af Miðjarðarhafinu í norðri, Súesflóa og Súesskurðinum í vestri og Akabaflóa og landamærum Egyptalands og Ísraels í austri. Sínaískagi er sá hluti Egyptalands sem tilheyrir Suðvestur-Asíu, en aðrir hlutar landsins eru í Norður-Afríku.
Skaginn er að mestu leyti eyðimörk. Á suðurhluta skagans er Sínaífjall þar sem Móses tók samkvæmt Biblíunni við steintöflum með boðorðunum tíu.
Sigdalurinn mikli liggur austan megin við skagann.