Ludwig Wittgenstein
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ludwig Josef Johann Wittgenstein (26. apríl 1889 – 29. apríl 1951) var austurrískur heimspekingur sem var brautryðjandi á ýmsum sviðum nútímaheimspeki, einkum í rökfræði, málspeki og hugspeki. Hann er af mörgum talinn einn áhrifamesti og merkasti heimspekingur 20. aldar.[1]
Enda þótt ýmsar minnisbækur, seðlar og fyrirlestrar hafi verið gefnir út að honum látnum lét Wittgenstein þó einungis gefa út eina bók eftir sig meðan hann var á lífi — Rökfræðilega ritgerð um heimspeki (Logisch-Philosophische Abhandlung eða Tractatus Logico-Philosophicus) árið 1921.
Elstu verk Wittgensteins voru undir miklum áhrifum frá Arthur Schopenhauer og hinni nýju rökfræði sem Bertrand Russell og Gottlob Frege höfðu skapað. Þegar Tractatus (eins og bókin er oftast kölluð) kom út hafði hún veruleg áhrif á heimspekinga Vínarhringsins. Wittgenstein taldi sig aftur á móti ekki tilheyra þeim skóla hugsunar og sagði að rökfræðilegu raunhyggjumennirnir hefðu misskilið Tractatus illa.
Þegar Wittgenstein hafði lokið við Tractatus taldi hann sig hafa leyst öll heimspekileg vandamál og sagði skilið við ástundun heimspekinnar. Hann fluttist til Austurríkis og gerðist barnaskólakennari, garðyrkjumaðir og arkítekt en gekk í klaustur um tíma. Árið 1929 sneri hann hins vegar aftur til Cambridge. Hann hlaut doktorsgráðu fyrir Tractatus og tók við kennslustöðu í Cambridge. Hann hafnaði eða endurskoðaði mikið af eldri verkum sínum. Hann þróaði nýja aðferð við að stunda heimspeki og nýjan skilning á eðli tungumáls í seinna stórvirki sínu Rannsóknum í heimspeki (Philosophische Untersuchungen), sem kom út að honum látnum.
Bæði eldri og yngri verk hans hafa haft gríðarleg áhrif á sögu rökgreiningarheimspeki. Meðal fyrrverandi samstarfsmanna og nemenda Wittgensteins sem héldu áfram að stunda heimspeki í anda aðferðar Wittgensteins eru Gilbert Ryle, Friedrich Waismann, Norman Malcolm, G.E.M. Anscombe, Rush Rhees, Georg Henrik von Wright, og Peter Geach. Meðal heimspekinga samtímans sem eru undir miklum áhrifum frá Wittgenstein má nefna Michael Dummett, Peter Hacker, Stanley Cavell, Cora Diamond og James F. Conant.
Efnisyfirlit |
[breyta] Helstu ritverk Wittgensteins
- „Logisch-Philosophische Abhandlung“ (Rökfræðileg ritgerð um heimspeki), kom fyrst út í Annalen der Naturphilosophie, 14 (1921)
- Ensk þýðing: Tractatus Logico-Philosophicus, C.K. Ogden (þýð.) (1922)
- Ensk þýðing: Tractatus Logico-Philosophicus, D.F. Pears og B.F. McGuinness (þýð.) (1961)
- Philosophische Untersuchungen (Rannsóknir í heimspeki) (1953)
- Ensk þýðing: Philosophical Investigations, G.E.M. Anscombe (þýð.) (1953)
- Bemerkungen über die Grundlagen der Mathematik (Athugasemdir um undirstöður stærðfræðinnar), G.H. von Wright, R. Rhees og G.E.M. Anscombe (ritstj.) (1956)
- Ensk þýðing: Remarks on the Foundations of Mathematics, G.E.M. Anscombe (þýð.), endursk. útg. (1978)
- The Blue and Brown Books (Bláa bókin og Brúna bókin) (1958)
- Íslensk þýðing: Bláa bókin Þorberg Þórsson (þýð.) með inngangi eftir Þorstein Gylfason.
- Philosophische Bemerkungen (Heimspekilegar athugasemdir), Rush Rhees (ritstj.) (1964)
- Ensk þýðing: Philosophical Remarks (1975)
[breyta] Heimildir og frekara lesefni
- Anscombe, G.E.M., An Introduction to Wittgenstein's Tractatus: Themes in the Philosophy of Wittgenstein (New York: Harper and Row, 1959).
- Ayer, A.J., Wittgenstein (Weidenfeld and Nicholson, 1985).
- Bogen, J., Wittgenstein's Philosophy of Language (London: Routledge, 1972).
- Conway, Gertrude, Wittgenstein on Foundations (Atlantic Highlands: Humanities Press, 1989).
- Findlay, J.N., Wittgenstein: A Critique (London: Routledge, 1984).
- Fogelin, R.J., Wittgenstein (London: Routledge, 1987).
- Grayling, A.C., Wittgenstein: A Very Short Introduction (Oxford: Oxford University Press, 1988).
- Hacker, P.M.S., Insight and Illusion (Oxford: Oxford University Press, 1987).
- Hacker, P.M.S., Wittgenstein's Place in Twentieth-Century Analytic Philosophy (Oxford: Blackwell, 1996).
- Hanfling, Oswald, Wittgenstein's Later Philosophy (Albany: Suny Press, 1989).
- Hilmy, S., The Later Wittgenstein: The Emergance of a New Method (Oxford: Blackwell, 1987).
- Kenny, Anthony, The Legacy of Wittgenstein (Oxford: Blackwell, 1984).
- Kenny, Anthony, Wittgenstein (Oxford: Blackwell, 1973).
- Klenk, V.H., Wittgenstein's Philosophy of Mathematics (Martinus Nijhoff, 1972).
- Logi Gunnarsson, Stigi Wittgensteins. Elmar Geir Unnsteinsson og Viðar Þorsteinsson (þýð.) (Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2005).
- McGinn, Marie, Wittgenstein (London: Routledge, 1997).
- McGuinness, B.F., Wittgenstein: A Life. Young Ludwig: 1889-1921 (London: Duckworth, 1988).
- McGuinness, B.F., Wittgenstein and His Times (Oxford: Blackwell, 1982).
- Monk, Ray, How to Read Wittgenstein (New York: W.W. Norton & Co., 2005).
- Monk, Ray, Ludwig Wittgenstein: The Duty of Genius (New York: Free Press, 1990).
- Mounce, H.O., Wittgenstein's Tractats. An Introduction (Oxford: Blackwell, 1981).
- Savikey, Beth, Wittgenstein's Art of Investigation (London: Routledge, 1999).
- Sluga, Hans og Stern, David G. (ritstj.), The Cambridge Companion to Wittgenstein (Cambridge: Cambridge University Press, 1996).
- Stern, David G., Wittgenstein og Mind and Language (Oxford: Oxford University Press, 1995).
- Stroll, Avrum, Wittgenstein (Oxford: Oneworld, 2002).
[breyta] Tilvísanir
[breyta] Tengt efni
- Rannsóknir í heimspeki
- Rökfræðileg ritgerð um heimspeki
- G.E.M. Anscombe
- Paul Feyerabend
- Karl Popper
- Bertrand Russell
- Frank Ramsey
- Gottlob Frege
- Rökfræðileg raunhyggja
- Sanntafla
- Vínarhringurinn
- Georg Henrik von Wright
[breyta] Tenglar
- Dictionary of Philosophy of Mind: „Ludwig Wittgenstein“
- Stanford Encyclopedia of Philosophy: „Ludwig Sittgenstein“
- Stanford Encyclopedia of Philosophy: „Wittgenstein's Aesthetics“
- Stanford Encyclopedia of Philosophy: „Wittgenstein's Philosophy of Mathematics“
- The Internet Encyclopedia of Philosophy: „Ludwig Wittgenstein (1889-1951)“