Lífland (fyrirtæki)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gerð: | Samvinnufélag |
Slagorð: | Betri búnaður |
Stofnað: | 1917 |
Staðsetning: | Korngörðum 5, 104 Reykjavík |
Lykilmenn: | Þórir Haraldsson, forstjóri |
Starfsemi: | Framleiðsla og sala á fóður- og þjónustuvörum til bænda og annarra |
Vefslóð: | http://www.mrf.is/ |
Lífland er íslenskt fyrirtæki sem hét áður Mjólkurfélag Reykjavíkur. Fyrirtækið var stofnað árið 1917 og seldi þá ýmsar vörur til bænda, s.s. kjarnfóður. Árið 2005 var nafninu breytt og einnig áherslum. Lífland rekur verslun við Lyngháls, en þar eru seldar ýmsar hestavörur, garðvörur, vörur fyrir útivist og sumarhús en einnig ýmsar vörur fyrir bændur.