Kvikmyndasjóður Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kvikmyndasjóður Íslands (ensku: Icelandic Film Fund) er opinber sjóður sem styrkir íslenska kvikmyndagerð. Sjóðurinn var stofnaður með lögum 26. apríl árið 1978 en frumvarp um stofnun slíks sjóðs var fyrst lagt fram af Ragnari Arnalds árið 1975. Það frumvarp var endurskrifað í menntamálaráðherratíð Vilhjálms Hjálmarssonar. Sjóðurinn var stofnaður sama ár og Kvikmyndasafn Íslands. Fyrsta kvikmyndahátíðin var sömuleiðis haldin í Reykjavík í tengslum við Listahátíð sama ár. Frá 1984 til 1998 var sjóðurinn að hluta fjármagnaður með skemmtanaskatti sem lagður var á bíómiða. Árið 2001 var Kvikmyndamiðstöð Íslands stofnuð með nýjum kvikmyndalögum og hefur hún umsjón með kvikmyndasjóði.
Fyrsta árið var veitt úr sjóðnum styrkjum að upphæð 30 milljónir gamlar krónur. Árið 2006 voru styrkir veittir að upphæð um 300 milljónir króna.
Fyrstu styrkirnir voru greiddir út árið 1979 og meðal fyrstu kvikmyndanna sem hlutu styrk það ár voru Land og synir, Veiðiferðin, Óðal feðranna og teiknimyndin Þrymskviða.
[breyta] Heimildir
- Bergsteinn Sigurðsson, Þegar kvikmyndin komst á legg - upphaf íslenska kvikmyndavorsins. Skoðað 5. febrúar, 2007.
- Kvikmyndalög (nr. 137 21. desember 2001). Skoðað 5. febrúar, 2007.
- Kvikmyndamiðstöð Íslands - Styrkir KMÍ frá upphafi til 2005. Skoðað 7. febrúar, 2007.
[breyta] Tenglar
Kvikmyndagerð á Íslandi |
---|
Listar |
Kvikmyndir • Heimildamyndir • Stuttmyndir • Sjónvarpsþættir • Sjónvarpsmyndir • Kvikmyndir tengdar Íslandi • Kvikmyndahús • Kvikmyndafyrirtæki |
Fólk |
Leikstjórar • Leikarar |
Annað |
Edduverðlaunin • ÍKSA • Kvikmyndamiðstöð Íslands • Kvikmyndasjóður Íslands • Kvikmyndasafn Íslands • Kvikmyndaskóli Íslands • SMÁÍS • Kvikmyndaskoðun |