Kvikmyndamiðstöð Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kvikmyndamiðstöð Íslands (KMÍ) (ensku: Icelandic Film Centre) er opinber stofnun sem var stofnuð með lögum sem sett voru 2001. Kvikmyndamiðstöð veitir styrki úr Kvikmyndasjóði og aðstoðar við kynningu á íslenskum kvikmyndum erlendis. Starfsfólk Kvikmyndamiðstöðvarinnar vinnur þannig að því að íslenskar myndir séu sýndar á kvikmyndahátíðum erlendis. Forstöðumaður er skipaður af menntamálaráðherra til fimm ára í senn. Núverandi forstöðumaður er Laufey Guðjónsdóttir.
Í kvikmyndalögum segir að verkefni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands séu að:
- Styrkja framleiðslu og dreifingu íslenskra kvikmynda.
- Stuðla að kynningu, útbreiðslu og sölu á íslenskum kvikmyndum hér á landi og erlendis og afla upplýsinga um íslenskar kvikmyndir og gefa þær út.
- Efla kvikmyndamenningu á Íslandi.
- Stuðla að auknum samskiptum við erlenda aðila á sviði kvikmyndamála.
[breyta] Tenglar
Kvikmyndagerð á Íslandi |
---|
Listar |
Kvikmyndir • Heimildamyndir • Stuttmyndir • Sjónvarpsþættir • Sjónvarpsmyndir • Kvikmyndir tengdar Íslandi • Kvikmyndahús • Kvikmyndafyrirtæki |
Fólk |
Leikstjórar • Leikarar |
Annað |
Edduverðlaunin • ÍKSA • Kvikmyndamiðstöð Íslands • Kvikmyndasjóður Íslands • Kvikmyndasafn Íslands • Kvikmyndaskóli Íslands • SMÁÍS • Kvikmyndaskoðun |