Kraftur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kraftur í sígildri eðlisfræði eru áhrif sem valda hröðun lausra hluta. Nettókrafturinn sem verkar á tiltekinn hlut getur verið summa margra einstakra krafta sem verka á hlutinn.
Kraftur er vigurstærð. Hann er skilgreindur sem breyting í skriðþunga og hefur því bæði tölugildi og stefnu. SI-mælieining krafts er njúton, táknuð með N. Lögmál Newtons fjalla um krafta og áhrif þeirra á hluti.
Í nútíma eðlisfræði er oftast talað um kraft sem víxlverkun einda með tilstuðlan annarra einda. T.d. er kjarnakrafturinn leiddur á milli kjarneinda með tilstuðlan miðeinda, rafsegulkrafturinn á milli hlaðinna agna að tilstuðlan ljóseinda og því vilja sumir eðlisfræðingar halda því fram að til séu svokallaða þungeindir sem eiga að leiða þyngdarkraftinn.