Jónas Svafár
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jónas E. Svafár (f. 8. september 1925 í Reykjavík, d. 27. apríl 2004 á Stokkseyri), var skáld og myndlistarmaður. Hann er almennt talinn til eins af atómskáldunum. Hann var óreglumaður og lifði oft slarksömu lífi, bjó t.d. í tjaldi í Vatnsmýrinni í tvö sumur þar sem hann lifði á rúgbrauði og lýsi. Hann tók sér nafnið Svafár sjálfur eftir að hafa dottið í braggagrunn og vaknað skáld. Aðrir segja að hann hafi sofið í ár, og því hafi hann tekið upp nafnið, en það er alþýðuskýring. Hann myndskreytti gjarnan bækur sínar sjálfur.
[breyta] Ljóðabækur
- Það blæðir úr morgunsárinu 1952
- Geislavirk tungl 1957
- Stækkunargler undir smásjá 1978
- Sjöstjarnan í meyjarmerkinu 1986
[breyta] Heimildir
Kiljan, Ríkissjónvarpið, 3. október 2007