HTML
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
HTML (HyperText Markup Language) | |
---|---|
Nafnlenging: | .html, .htm |
MIME gerð: | text/html |
UTI: | public.html |
Hannað af: | W3C |
Tegund forsniðs: | Ívafsmál |
Útvíkkað frá: | SGML |
Útvíkkað í: | XHTML |
Staðall: | W3C 4,01 (Tilmæli) |
HyperText Markup Language eða HTML er ívafsmál notað til þess að sníða stiklutexta, oftast notað við gerð vefsíðna og er það einföld útgáfa á SGML ívafsmálinu. HTML er nú staðall haldið við af World Wide Web Consortium (W3C) og er nýjasta útgáfa þess 4.01 en W3C mælir með að fólk noti hið XML byggða XHTML í stað þess. Sérstök merki, tög, eru notuð í HTML til að merkja á rökréttan hátt hvaða hlutar skjalsins þýða hvað, til dæmis hver fyrsta fyrirsögnin á síðunni er, merkin eru táknuð með goggum, eða minna en og stærra en merkjum. Einnig er stór hluti taga í HTML sem segir til um útlit hluta skjalsins, en HTML hefur einmitt verið gagnrýnt fyrir að greina ekki nægilega vel á milli útlitsþátta (umbrots) og innihalds.
Dæmi um HTML 4.01 kóða:
<!DOCTYPE HTML PUBLIC "-//W3C//DTD HTML 4.01//EN" "http://www.w3.org/TR/html4/strict.dtd"> <html lang="is"> <head xmlns="http://www.w3.org/1999/xhtml" xml:lang="is"> <title>Halló heimur!</title> <meta http-equiv="Content-Type" content="text/html; charset=UTF-8"> </head> <body> <p>Halló heimur!</p> </body> </html>