Herðubreið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Herðubreið | |
---|---|
Herðubreið séð úr norðri |
|
Hæð: | 1682 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning: | Í Ódáðahrauni, norðan Vatnajökuls |
Fjallgarður: | Enginn |
Herðubreið er 1682 metra hátt móbergsfjall norðan Vatnajökuls. Hún er í Ódáðahrauni og er oft nefnd „Drottning íslenskra fjalla“ (sjá listann yfir gælunöfn) vegna þess hve mörgum finnst hún formfögur. Fjallið myndaðist við eldgos undir jökli. Á toppi þess eru hraunlög og hefur gosið því náð upp úr jöklinum. Slík fjöll, þ.e.a.s. móbergsfjöll með hraunlögum að ofan, kallast stapar. Herðubreið var valin þjóðarfjall Íslendinga í kosningu árið 2003.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Heimild
- Greinin „Herðubreið“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. desember 2005.