Heiladingull
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Heiladingull er innkirtill sem gengur niður úr undirstúku heilans. Hann er á stærð við baun og um hálft gramm að þyngd. Hann er í raun samsettur úr tveimur kirtlum, taugadinglinum og kirtildinglinum sem heita svo því annar þeirra er úr taugavef en hinn úr kirtilvef. Í taugadinglinum verður til vesópressín sem er þvagtemprandi hormón og oxítósín sem er sem örvar fæðingarhríðir. Í kirtildinglinum verða til barkstýrihormón, stýrihormón skjaldkirtils, prólaktín, eggbússtýrihormón, gulbússtýrihormón og vaxtarhormón.