Haile Selassie
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Haile Selassie (ge'ez: ኃይለ፡ ሥላሴ, „kraftur þrenningarinnar“; 23. júlí, 1892 – 27. ágúst, 1975) var ríkisstjóri Eþíópíu frá 1916 til 1930 og Eþíópíukeisari frá 1930 til 1974. Hann átti þátt í að nútímavæða landið og var gríðarlega vinsæll leiðtogi, bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi.
Selassie var meðlimur eþíópísku rétttrúnaðarkirkjunnar. Innan rastafarahreyfingarinnar, sem var stofnuð á Jamaíku snemma á 4. áratugnum er hann talinn vera Kristur endurborinn.