GNU
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
GNU (ensk skammstöfun fyrir GNU's Not Unix eða GNU er ekki Unix) er frjálst hugbúnaðarverkefni með það að markmiði að búa til frjálst stýrikerfi. Því var upprunalega ýtt af stokkunum í september 1983 af Richard Stallman.
Samkvæmt Stallman er nafnið er borið fram guh-NÚ eða ˌgəˈnɯ eins og það er oftast skrifað í alþjóðlega hljóðstafrófinu.
UNIX stýrikerfið var þegar víðnotað þegar byrjað var að skrifa GNU, þar sem hönnun þess hafði þegar sannað sig, var ákveðið að gera GNU samhæft því. Hönnun UNIX gerði GNU kleift að skrifa eitt og eitt forrit í einu til að koma í stað fyrir álíka forrit í UNIX. Ekki þurfti þó að skrifa allt frá grunni þar sem ýmsir hlutar t.d. TeX og X Gluggakerfið voru þegar til og voru frjáls.
[breyta] Saga
Tilkynnt var um verkefnið í bréfi sem sent var þann 27. september 1983 á Usenet fréttahópana net.unix-wizards og net.usoft. Vinna við stýrikerfið byrjaði þó ekki á fullu fyrr en 5. janúar 1984 þegar Stallman sagði starfi sínu hjá MIT lausu sökum ótta við það að MIT myndi kasta eign sinni á GNU og/eða trufla dreifingu þess sem frjáls hugbúnaðar.
[breyta] Tenglar
- Vefsíða GNU verkefnisins
- Tilkynning Stallman um GNU verkefnið
- Löng, persónuleg útskýring á verkefninu og sögu þess eftir Richard Stallman
- The Free Universal Encyclopedia and Learning Resource, Ritgerð eftir Stallman um GNU alfræðiorðabók
- GNU-vinir, spjallsvæði
- Windows útgáfur af GNU tólum á Sourceforge
- Savannah, hugbúnaðarþróunarsíða GNU verkefnisins er svipar til Sourceforge