Forsetakosningar á Íslandi 2008
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi grein fjallar um atburði sem eiga sér stað núna. Innihald greinarinnar gæti af þessum sökum breyst þegar fram líða stundir. |
Íslensk stjórnmál Þessi grein er hluti af greinaflokknum: Íslensk stjórnmál |
Forsetakosningar á Íslandi 2008 munu fara fram 28. júní 2008,[1] ef fram kemur mótframboð gegn Ólafi Ragnari Grímssyni núverandi forseta Frestur til að skila inn framboðum rennur út 24. maí.
Í nýársávarpi forseta 1. janúar 2008 gaf Ólafur Ragnar kost á sér til endurkjörs sem forseti Íslands. [2]
Ástþór Magnússon sem bauð sig fram í forsetakosningunum 1996 og 2004 hélt blaðamannafund í janúar 2008 þar sem hann gaf ekki upp hvort að hann sæktist sjálfur eftir embættinu en bauðst til þess að greiða kostnað vegna forsetakosninga úr eigin vasa ef af yrði.[3] Hann lýsti því svo yfir í apríl að hann hygðist ekki bjóða sig fram.[4]
[breyta] Tilvísanir
- ↑ Lög um framboð og kjör forseta Íslands. Skoðað 20. desember, 2008.
- ↑ Gefur kost á sér til endurkjörs. Skoðað 2. janúar, 2008.
- ↑ Ástþór býðst til að borga fyrir lýðræðið (24. janúar 2008).
- ↑ Ástþór býður sig ekki fram (27. apríl 2008).
[breyta] Tenglar
- Vefur Dómsmálaráðuneytisins um forsetakosningarnar 2008
- Forsetakosningar.is, vefsíða Ástþórs Magnússonar um forsetakosningar
Fyrir: Forsetakosningar 2004 |
Forsetakosningar | Eftir: Forsetakosningar 2012 |