Flateyjardalsheiði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Flateyjardalsheiði er heiðardalur á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa. Hún nær frá Fnjóskadal í suðri til Eyvindarár og Urðargils í norðri, en þar fyrir norðan er strönd sem heitir Flateyjardalur og heiðin dregur nafn sitt af. Áin Dalsá rennur eftir botninum, en fjöll girða heiðina austan- og vestanmegin. Fjallgarðurinn vestan heiðarinnar heitir ekki neitt, en meðal fjalla austan hennar má nefna Víknafjöll (sem er farið um til að komast í Náttfaravíkur), Háu-Þóru, Lágu-Þóru, tveir Bræður, tveir Strákar, Sigga, Vigga og nyrst er fjall sem heitir ýmist Hágöngur, Bakrangi eða Galti, eftir sjónarhorninu.
Norðurmörk Flateyjardalsheiðar markast af Eyvindará vestan Dalsár en Urðargili austan hennar. Þar fyrir norðan var Flateyjarhreppur, en heiðin sjálf tilheyrði Hálshreppi og sótti kirkju til Fnjóskadals, fyrir utan bæinn á Eyvindará, sem hafði undanþágu til að sækja kirkju á Brettingsstöðum.
Eftir allri heiðinni liggur vegur (F899) sem er vel fær jeppum og góðum fólksbílum.
Átta eyðibýli eru á Flateyjardalsheiði:
- Kambsmýrar, í eyði 1929
- Austari-Krókar, í eyði 1946
- Vestari-Krókar, í eyði 1935
[breyta] Tengt efni
[breyta] Heimildir
- Eyðibyggðin í Fjörðum og nærsveitum, á heimasíðu ferðafélagsins Fjörðunga
- Valgarður Egilsson: Örnefni við Eyjafjörð, áheimasíðuÖrnefnastofnunar