See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Egill Skalla-Grímsson - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Egill Skalla-Grímsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Egill Skalla-Grímsson (eða Skallagrímsson, ~910 – ~990) var höfðingi á Íslandi á víkingaöld. Um hann er fjallað í Egils sögu (Eglu). Kona hans var Ásgerður Björnsdóttir, en hún var áður gift Þórólfi, bróður Egils.

Egill með lík Böðvars, sonar síns. Höggmyndin er í Skallagrímsgarði í Borgarnesi
Egill með lík Böðvars, sonar síns. Höggmyndin er í Skallagrímsgarði í Borgarnesi

Þat mælti mín móðir,
at mér skyldi kaupa
fley ok fagrar árar,
fara á brott með víkingum,
standa upp í stafni,
stýra dýrum knerri,
halda svá til hafnar
höggva mann ok annan.

[breyta] Ævi

Egill Skalla-Grímsson fæddist líklega árið 910 á Borg á Mýrum. Hann tilheyrir fyrstu kynslóð Íslendinga. Egill var sonur hjónanna Gríms Úlfssonar, sem kallaður var Skallagrímur, og Beru Yngvarsdóttur en þau settust að á Íslandi ásamt öðru flóttafólki frá Noregi við upphaf landmáms. Grímur var landflótta ásamt föður sínum Úlfi Bjálfasyni eftir að Þórólfur bróðir Gríms var tekinn af lífi fyrir landráð. Auk þess urðu feðgarnir Grímur og Úlfur sekir um glæpi fyrir flóttann. Talið er að þeir hafi myrt í Noregi meira en fimmtíu manns, þar af að minnsta kosti tvö börn, 10 og 12 ára.

Egill Skall-Grímsson leið alla ævi fyrir þessi hermdarverk föður síns og afa og einkenndist líf hans af átökum við norska konungsvaldið sem af framangreindum ástæðum meinaði honum að ná rétti sínum en Egill gerði tilkall til eigna í Noregi er hann þóttist vera arfi að vegna konu sinnar Ásgerðar Bjarnadóttur en foreldrar hennar voru stóreignafólk úr Firðarfylki og af góðum ættum.

Egill var frá unga aldri mikill hermaður. Hann stundaði hernað og barðist víða um lönd, bæði sem víkingur og sem málaliði í þjónustu konunga. Sagan segir að hann hafi framið sitt fyrsta víg sjö ára gamall, þegar hann vó Grím Heggsson á Hvítárvöllum.

Egill var gott skáld og eru kvæði hans í hávegum höfð enn þann dag í dag. Sitt fyrsta kvæði orti Egill þriggja ára gamall samkvæmt sögunni.

Egill dó um áttrætt í Mosfellssveit og var grafinn þar sem nú stendur bærinn Hrísbrú. Hundrað árum seinna þótti afkomendum hans hann vera svo merkilegur að ástæða þótti til að flytja líkamsleifar hans í nýjan kirkjugarð sem nú stendur þar sem heitir Mosfell í Mosfellsdal.

Egils saga er helsta heimildin um ævi og störf Egils. Talið er að Snorri Sturluson hafi skrifað hana.

[breyta] Börn

Börn Egils með Ásgerði Björnsdóttur voru:

  • Þorgerður Egilsdóttir
  • Bera Egilsdóttir
  • Böðvar Egilsson
  • Gunnar Egilsson
  • Þorsteinn Egilsson

[breyta] Tenglar

Wikiheimild
Wikiheimild hefur upp á að bjóða frumtexta sem tengist:


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -