C Sharp
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
C# (borið fram C Sharp) er hlutbundið forritunarmál hannað af Microsoft sem kom út í júní árið 2000. Ætlunin var hjá Microsoft að búa til hlutbundið forritunarmál sem gæti keppt við Java forritunarmálið frá Sun. Málskipan þess svipar til C++ en hefur einnig nokkur atriði úr öðrum málum eins og Java, Delphi og Visual Basic.
Helsta útgáfa Microsoft fyrir Windows stýrikerfið heitir Microsoft Visual C# og er hluti af Visual Studio þróunarumhverfinu. Hægt er að nota C# á öðrum stýrikerfum með svokallaðri Mono útgáfu, hún keyrir á Linux, FreeBSD, UNIX, Mac OS X, Solaris og Windows stýrikerfum.
Málið er einnig hannað með það í huga að vera einfalt, nútímalegt, hlutbundið og með tag öryggi. Tag öryggi er þegar ekki er hægt að keyra forrit nema breyta sé að fá rétt tag inn í sig, einnig er ekki hægt að umbreyta sumum tögum yfir í annað.
Málið hefur sjálfvirka minnishreinsun líkt og Java. Hún virkar þannig að hlutir sem forritið er hætt að nota eru hreinsaðir í burtu til að koma í veg fyrir keyrsluvillur. Í eldri málum þurfti forritarinn að hugsa sjálfur um að hreinsa minnið handvirkt með delete línum í kóðanum. Ruslahreinsunin hefur hinsvegar orð á sér að vera töluvert hægvirk.
Aðalhönnuður C# heitir Anders Hejlsberg, hann hefur unnið að hönnun margra forritunarmála. Þar ber helst að nefna Turbo Pascal og Delphi sem og J++ sem var Microsoft útgáfa af java áður en C# kom til sögunnar.
Efnisyfirlit |
[breyta] Halló, heimur! í C#
class Halló_Heimur { static void Main() { System.Console.Write("Halló, Heimur!"); } }
[breyta] C# 3.0
C# 3.0 var hleypt af stokkunum 19. nóvember 2007 og er byggt ofan á C# 2.0. Það eru kynntar nokkrar viðbætur við málið sem eru byggðar ofan á C# 2.0 til að styðja við notkun á fallaforritun, vinsæl fallforitunarmál eru MON LISP, ML og Haskel. Svo er líka nýtt í 3.0 Language Integrated Query (LINQ). LINQ er ein leið til að skilgreina eða gera fyrirspurnir á gögn.
[breyta] Tengt efni
- Microsoft Visual C#
- .NET Framework
- Grunnklasasafn
[breyta] Heimildir
- Greinin „C sharp“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. febrúar 2007.
- Greinin „Garbage collection (computer science)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. febrúar 2007.
- Greinin „Type safe“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. febrúar 2007.
- Greinin „Mono (software)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. febrúar 2007.
- F#