Brekkukotsannáll
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Brekkukotsannáll er skáldsaga eftir Halldór Laxness sem kom fyrst út árið 1957. Samnefnd sjónvarpsmynd var gerð eftir sögunni og var frumsýnd í Ríkissjónvarpinu árið 1973.
[breyta] Fyrirmyndin að Brekkukoti
Fyrirmynd Halldórs Laxness að Brekkukoti var bær sem nefndist Melkot, en þar bjuggu hjónin Guðrún Klængsdóttir og Magnús Einarsson. Guðrún þessi var ömmusystir Halldórs, og ólu þau hjónin upp Sigríði, móður skáldsins. Guðjón Helgason, faðir Halldórs, var vinnumaður í Melkoti, og þar kynntust þau.
Melkot var afbýli frá Melhúsum. Bærinn Melhús stóð þar sem nú er norðurendi gamla kirkjugarðsins við Suðurgötu. Þar var dálítil bæjarþyrping á 19. öld og hét einn bærinn í Melshúsum Hringjarabærinn. Hann kemur við sögu í Brekkukotsannál. Melkot stóð nokkurn veginn beint ofan þar sem nú er ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu.
[breyta] Tengill
- Mannlíf í Melkoti; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1992
- Oh höj, Halldóra mín; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1992