Bloemfontein
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bloemfontein (framburður: [ˈblumfɑnˌte(ɪ)n]) er ein þriggja höfuðborga Suður-Afríku og aðsetur dómsvaldsins. Nafn borgarinnar merkir "blómalind" á bæði afríkönsku og hollensku. Borgin nefnist Mangaung á suður-sótó, sem að merkir "híbýli blettatígranna". Íbúar borgarinnar eru alls 369.568 talsins.