Barnaheill
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Barnaheill (e. Save the Children) eru alþjóðleg félagasamtök sem starfa að því markmiði að bæta hag barna á Íslandi og í öðrum löndum.
Upprunalegu samtökin voru stofnuð 1919 í London í Englandi. Íslandsdeild samtakanna var stofnuð 24. október 1989. Félagsmenn eru um 20 þúsund talsins og er félagið rekið með félagsgjöldum, fjárframlögum og fjáröflunum, þ.á m. útgáfu minningar- og jólakorta. Formaður er Árni Magnússon.