See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Bíldudalur - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Bíldudalur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Bíldudalur séður austan Vogs
Bíldudalur séður austan Vogs
Bíldudalur; séð út Bíldudalsvog
Bíldudalur; séð út Bíldudalsvog

Bíldudalur er þorp við sunnanverðan Arnarfjörð og er í raun eina þéttbýlið við fjörðinn. Staðurinn stendur við Bíldudalsvog sem gengur inn af firðinum. Norðan megin við voginn er Bíldudalsfjall og sunnan Otradalsfjall, en það er oft nefnt Bylta af heimamönnum. Í þorpinu búa alls 218 manns (2006).

Bíldudalur á sér langa og merka sögu, þar var meðal annars einn af verslunarstöðum einokunarverslunarinnar. Fljótlega eftir að verslun var gefin frjáls í lok 18. aldar eignaðist Ólafur Thorlacius verslunina og rak þaðan þilskipaútgerð og flutningaskip og seldi fisk beint til Spánar. Pétur J. Thorsteinsson rak einnig mikinn atvinnurekstur á Bíldudal milli 1880 og 1910 með útgerð og verslun. Á þeim tíma sem Pétur var útgerðarmaður fjölgaði íbúum og tók að myndast allstórt þorp á staðnum. Nokkru eftir að Thorsteinsson flutti burtu tóku þeir Hannes Stephensen Bjarnason og Þórður Bjarnason við verslun og útgerð á Bíldudal.

Einn af þekktustu Bílddælingum er Guðmundur Thorsteinsson, sonur Péturs J. Thorsteinssonar, betur þekktur sem Muggur.

Árið 1918 var Hnúksá, ofan við bæinn, virkjuð.

Gísli Jónsson alþingismaður, átti um tíma miklar eignir á Bíldudal og kom hann á fót verksmiðjunni sem framleiddi Bíldudals grænar baunir og eftir þeirri afurð hefur fjölskylduhátíð á Bíldudal verið nefnd. Árið 1943 átti sér stað svokallað Þormóðsslys og var það mikið áfall fyrir Bíldudal og Bílddælinga því að í því fórust margir þorpsbúar.

Kirkja staðarins, Bíldudalskirkja, var byggð árið 1906 en áður sóttu Bílddælingar messu í Otradalskirkju.

  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
Á öðrum tungumálum


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -