Arngrímur Jónsson lærði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Arngrímur Jónsson lærði | |
Fædd(ur) | 1568 Auðunarstöðum |
---|---|
Látin(n) | 27. júní, 1648 |
Búseta | Melstaður |
Þekktur fyrir | Crymogæa |
Starf/staða | Prestur |
Maki | Sólveig Gunnarsdóttir Sigríður Bjarnadóttir |
Börn | Helga Arngrímsdóttir Gunnar Arngrímsson Jón Arngrímsson Þorkell Arngrímsson Vídalín Ingibjörg Arngrímsdóttir Solveig Arngrímsdóttir Þorlákur Arngrímsson Bjarni Arngrímsson Guðbrandur Arngrímsson Vídalín Hildur Arngrímsdóttir |
Foreldrar | Jón Jónsson Ingibjörg Loftsdóttir |
Arngrímur Jónsson lærði (1568 – 27. júní, 1648) var prestur og fræðimaður á Mel í Miðfirði. Hann er einkum frægur fyrir rit sitt um Ísland, Crymogæa. Hann fæddist á Auðunarstöðum í Víðidal, sonur Jóns Jónssonar og Ingibjargar Loftsdóttur, en flutti ungur til frænda síns, Guðbrands Þorlákssonar biskups á Hólum. Hann varð stúdent úr Hólaskóla 1585 og fór til náms í Kaupmannahafnarháskóla, kom aftur til Íslands 1589 og fékk þá konungsveitingu fyrir brauðinu Mel í Miðfirði en varð svo rektor á Hólum til 1595. Varð formlega aðstoðarmaður Guðbrands biskups árið 1596.
Arngrímur átti í miklum bréfaskiptum við Ole Worm og skrifaði mikið af lærðum ritum. Sérstaka eftirtekt hlutu rit hans um íslensk efni s.s. Brevis commentarius og Crymogæa. Crymogæa er fyrsta samfellda Íslandssagan, en átti upphaflega að vera lært svar við ritum erlendra manna um Ísland. Eftir Arngrím liggja einnig margar þýðingar á guðsorðabókum og sálmar.
Stungið hefur verið upp á því að skrif Arngríms gegn ritum erlendra höfunda um Ísland hafi verið hluti af því pólitíska valdatafli sem Danakonungur lék gegn Hansakaupmönnum á þeim tíma og leiddi á endanum til verslunareinokunar Dana, en rit Arngríms beindust gegn skrifum manna sem höfðu komið til Íslands í erindum verslunar Hansakaupmanna.
[breyta] Ritverk
- Brevis commentarius de Islandia (Kaupmannahöfn, 1593)
- Crymogæa (Hamborg, 1610)
- Anatome Blefkeniana (Hólar, 1612)
- Epistola pro patria defensoria (Hamborg, 1618)
- Apotribe virulentæ et atrocis calumniæ (Hamborg, 1622)
- Athanasia (Hamborg, 1630) (æviminning Guðbrands biskups Þorlákssonar)
- Specimen Islandiæ historicum (Amsterdam, 1643)
- Gronlandia eður Grænlandssaga (Skálholt, 1688)
- Jómsvíkingasaga (Kaupmannahöfn, 1877) (latnesk þýðing)