365 miðlar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
365 miðlar er stærsta fjölmiðlafyrirtæki Íslands; þjónustufyrirtæki á sviði blaðaútgáfu, sjónvarps- og útvarpsreksturs og vefmiðlunar. Fyrirtækið rekur sex sjónvarpsstöðvar (fyrir utan + og extra stöðvar), sjö útvarpsstöðvar, eitt dagblað, tvö tímarit og einn vefmiðil.
Efnisyfirlit |
[breyta] Nafnabreyting sjónvarpsstöðva 2008
Stór nafnabreyting varð á sjónvarpsstöðvum 365 miðla 13. mars 2008 en þá urðu allar sjónvarpsstöðvar kenndar við Stöð 2 ásamt frekara auðkenni. Þannig fékk Sýn nafnið Stöð 2 Sport, Sýn 2 varð Stöð 2 Sport 2, Sirkus varð Stöð 2 Extra, Fjölvarpið (Endurkast erlendra sjónvarpsstöðva) fékk nafnið Stöð 2 Fjölvarp en Stöð 2 Bíó hélt sínu nafni. Vildarklúbburinn M12 fékk einnig nýtt nafn, Stöð 2 Vild.
[breyta] Miðlar
[breyta] Sjónvarpsstöðvar
- Stöð 2
- Stöð 2 +
- Stöð 2 Bíó (áður: Bíórásin)
- Stöð 2 Bíó +
- Stöð 2 Extra (áður: Sirkus og Stöð 2 Sirkus)
- Stöð 2 Extra +
- Stöð 2 Sport (áður: Sýn)
- Stöð 2 Sport +
- Stöð 2 Sport 2 (áður: Sýn 2)
- Stöð 2 Sport Aukastöðvar (áður: Sýn Extra)
- SkífanTV (áður: PoppTíVí)
[breyta] Útvarpsstöðvar
[breyta] Prentmiðlar
- Fréttablaðið
- Sirkus
- Markaðurinn
- Reykjavik.com