Ármann á Alþingi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ármann á Alþingi var baráttu-, menningar- og þjóðmálarit sem gefið var út af Baldvin Einarssyni og Séra Þorgeiri Guðmundssyni í sjálfstæðisbaráttu Íslands. Útgáfan hófst 1830, aðeins 21 ári eftir skammlíft sjálfstæði Íslands byltingarsumarið 1809, þegar Jørgen Jørgensen lýsti landið frjálst og fullvalda ríki úr lögum við Danmörk. Tímaritið var gefið út í Danmörku og var efnið oft í formi samtala á milli ólíkra stétta. Yfirlýst markmið útgefenda var m.a. að endurreisa Alþingi Íslendinga.
Árið 2006 hóf Ármann Kr Ólafsson kosningabaráttu sína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi undir slagorðinu Ármann á Alþingi.